Dagur 5

Kanileplin vöru algjörlega málið.... djís hvað þetta var gott :) Ég, sælgætisgrísinn var líka ekkert smá stollt af mér í dag þegar ég fór með sonunum að kaupa laugardagsnammið... ekkert svindlað hér á bænum.

Morgunmatur:

30gr Brauð

5gr Viðbit

2,5dl Undanrenna

1 Mandarína

Hádegismatur:

30gr Brauð

5gr Viðbit

150gr Skyr

1dl mjólk

200gr Gullrætur

Kvöldmatur:

120 gr Ungnaut

200gr hitað og ferskt grænmeti

50gr grísk Jógúrt

Kvöldsnarl:

1 epli

0,5 Banani

2stk Ping ísar

 

Jújú Kanileplin voru svo góð í gær að ég bara varð að fá mér svoleiðis aftur í kvöld... má maður ekki fá sér e-ð smá svona um helgar? Finnst það æði að vera ekki að fara út af prógraminu en samt að fá sér e-ð svona nammigott. Ég prufaði að vísu að steikja banana með þessu núna (var með fersk jarðarber í gær) og fannst það betra.... en það var samt ekkert of gott að borða svona tvö kvöld í röð... fékk bínu ógeð.

En það er bara gott, þá fer maður ekki að fá sér e-ð svona í óhófi. Devil


Dagur 4

Annar sonurinn í fríi og hinn lasinn, því var ég heima í dag og ekkert búin að taka neitt til þannig... en fór í búðina í gær :)

Morgunmatur:

30gr Kellogs

1dl Undanrenna

1,5dl Appelsínudjús

Morgunkaffi:

1 Banani

Hádegismatur:

150 gr Vanillu skyr

1dl Undanrenna

Hrært saman með smá slettu af sætuefnnum

200gr Tómatar

Kvöldmatur: Pizza...

60gr Pítubrauð

6tsk Tómatsósa

200gr grænmeti

120gr Hakk - gufusoðið

50gr Ostur

Kvöldsnarl:

......

Dagurinn er nú ekki búinn en ég á eftir 1-2 ávexti, 3/5 mjólk og alla fituna... Líter af vatni líka.

Er að hugsa um að steikja mér epli uppúr smjöri, sætuefni og kanil og borða Ping DDV ís með. Held að það sé algjörlega málið á föstudagskvöldi. Á líka jarðarber sem væri ekki vitlaust að skera niður með :)

Rúntaði búð úr búð í dag að leita mér að undanrennudufti.. leitaði í öllum deildum og spurði starfsfólk en fann það hvergi Pouty Bónus, Nettó, Kaskó!


Dagur 3

Ég var ekki búin að gera neitt klárt þennan daginn og var eiginlega pínu lost þegar ég vaknaði.

Morgunmatur:

30gr Brauð - ristað

5gr Viðbit

2,5dl Undanrenna

Morgunkaffi:

1,5dl Appelsínudjúsglas

Hádegismatur:

30gr Brauð

25gr Ostur

170 gr grænmeti

Síðdegiskaffi:

1 Pera

Kvöldmatur:

170gr Fiskur

10gr Viðbit

270gr Rófur

2,5dl Undanrenna

Ég tók með mér pening til að kaupa tilbúinn kjúkling og smá meira grænmeti í hádegismat þar sem ískápurinn minn var nánast tómur...... Vissi það ekki þá að bíllinn væri bilaður fyrir utan og þurfti að fá far í vinnuna Undecided

Sem betur fer átti ég e-ð í ísskápnum þar, þannig að dagurinn varð ekki alveg glataður þó ég náði honum ekki alveg 100%

Sofnaði síðan klukkan 9 með sonum mínum þannig að ég borðaði því ekki síðasta ávöxtinn og vatnið þennan daginn náði bara einum líter Undecided


Dagur 2

Ég sofnaði svöng og vaknaði svöng... whats up with that?? LoL

Eins og hinn daginn þá var ég búin að rumpa daginn niður á blað og nestið mitt beið mín í ísskápnum.  Ég hef aldrei getað borðað svona nývöknuð svo tilhugsunin um brauð eða eggjahræru eða e-ð þannig er ekkert allt of góð... væri alveg sátt með mitt Kellogs á hverjum morgni.

Morgunmatur:

30gr Kellogs

2,5dl Undanrenna

1 Mandarína

Morgunkaffi:

1 Banani

Hádegismatur:

80gr Túnfiskur

15gr létt majó

60gr brauð

250 gr grænmeti

1,5dl Appelsínudjús

Síðdegiskaffi:

Nokkrar gullrætur

Kvöldmatur:

170gr Ungnautasteik

200gr Grænmeti - soðið

3tsk Létt majó

smá sletta undanrenna, salt, pipar og hvítlaukur.

Kvöldsnarl:

2,4 dl Undanrenna

 

Mmmmm hvað kvöldmaturinn var geggjaður. Átti samt í vandræðum með að klára grænmetið... var svo mikið vatnsbragð af því en ég hafði það á endanum. Fann aldrei fyrir svengd í dag en vá er bara búin að vera á þessu í 2 daga og meltingin maður... Allt á eðlilegt sko, nenni þessu nú samt kannski ekki á morgnana OG kvöldin!! LoL

Mig vantaði 1 vatnsglas uppá að klára vatnsskammtinn og ég fékk mér eitt glas af Sprite Zero með kvöldmatnum.... var farin að finna verulega fyrir sykurkallinu og þaggaði niður í því með þessu.


Dagur 1

Sat kvöldinu áður og ákvað hvað ég skyldi borða yfir daginn, vigtaði og setti nesti í poka. Full tilhlökkunar og spennu.. samt kvíðin yfir öllu þessu áti þar sem ég er ekki vön að borða nema svona 2x á dag!! Enda sagði Sóley (sú sem sér um DDV fundina) að á þessu mataræði finnur maður aldrei fyrir svengd.

Morgunmatur:

30gr Kellogs Key

2dl léttmjólk

1 Appelsína

Morgunkaffi:

Appelsínudjús

Hádegismatur:

60gr Brauð

15gr Majó

2 Egg

200gr Grænmeti

Síðdegiskaffi:

1 Appelsína

Kvöldmatur:

160gr Kjúklingur

250gr Grænmeti

5gr Olía

15gr Ostrusósa

2dl Léttmjólk

Drakk 2 lítra af vatni yfir daginn.

 

Dagurinn gekk alveg eins og í sögu en það kom mér verulega á óvart að 3x yfir daginn fann ég sko alveg fyrir svengd.

 


Byrjunin....

Á mánudaginn var (15.mars) ákvað ég að prufa að fara á fund hjá Íslensku Vigtarráðgjöfunum.

Mér leist mjög vel á þessa lífsstílsbreytingu og ákvað að slá til og borgaði 5 vikur hjá þeim.

Ég þyngdist svo þegar ég átti strákana mína og vil losa mig við 16 kíló. Ég hef byrjað á hinum og þessum kúrnum og misst frá 4-6 kíló en þau koma strax aftur á mann 2 dögum eftir að kúrinn er kláraður... það er þessvegna sem mér líst svo á þetta hjá þeim DDV þar sem þetta er jú lífstílsbreyting en ekki e-r stuttur kúr.

Eins er ég líka mjög gjörn á það að fá bæði höfuðverki go magaverki. Ég er síþreytt og líkaminn öskrar á sætindi á hverjum einasta degi!!!  Ég veit að þetta má allt laga með réttu mataræði.

Nú er það bara harkan 6... Ég vil, ég get, ég SKAL :)


Um bloggið

DDV átakið mitt

Höfundur

Miss Dé Dé Vaff
Miss Dé Dé Vaff
Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 0
  • Frá upphafi: 67

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 0
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband